Þjónusta
Fjölbreytt úrval sjávarafurða fyrir stóreldhús og verslanir.
.Norðanfiskur sérhæfir sig í frosnum fiskafurðum og býður fjölbreytt úrval matvæla sem eiga það sameiginlegt að vera unnar úr fersku sjávarfangi sem er tilreidd til steikingar eða suðu án frekari undirbúnings. Markmið fyrirtækisins er að vera leiðandi á sínu sviði, eiga frumkvæði að vöruþróun og veita framúrskarandi þjónustu auk þess að bjóða gott úrval sjávarafurða á hagstæðu verði.
Fyrirtækið var stofnað í mars 2001 og hefur frá fyrsta degi vaxið og dafnað og má segja að það sé í dag leiðandi í tilbúnum réttum sjávarafurða á innanlandsmarkaði. Fyrirtækið hefur frá upphafi lagt mikla áherslu á vöruþróun og bíður í dag fjölbreytt úrval sjávarafurða fyrir stóreldhús og verslanir.
Norðanfiskur hefur frá upphafi haft afar færum matreiðslumeisturum á að skipa og kemur það glögglega fram í gæðum afurðanna enda er hið skilgreinda keppikefli í rekstrinum að hver sá sem þessa vöru velur og matreiðir handa sínu fólki hljóti mikið þakklæti og hrós að launum - hverju sinni.

