Um Norðanfisk
bigphoto

Góður kostur á hvers manns disk!

Fyrirtækið Norðanfiskur ehf. var stofnað á Akureyri árið 2001 í þeim tilgangi að framleiða og selja vandaðar fiskafurðir til neyslu innanlands. Þróunin hefur reyndar orðið sú að markaðssvæðið nær nú líka til meginlands Evrópu. Þar ytra er verið að þjóna kröfuhörðum verslanasamstæðum og neytendum, ekki síður en hérlendis. Þekkingar og reynslusvið starfsmanna fyrirtækisins spannar því vítt svið m.a. í vöruþróun og ber úrval framleiðslu­varanna þess glöggt merki.

Það var því m.a. með tilliti til krafna um vítt og áhugavert framboð fram­leiðslu­vara, gæðaeftirlits og vöruvöndunar að efnt var til sameiningar við IFE, þ.e. Islenskt-Franskt-Eldhús og framleiðslan flutt í hina mjög svo fullkomnu aðstöðu þess á Akranesi. Þar hefur fyrirtækið á að skipa viðurkenndum fagmönnum, bæði á sviði vinnslu og matreiðslu. Framkvæmdastjóri þess er Pétur Þorleifsson og sölustjóri er Kristján Kristmundsson, en þeir sinna, að jafnaði fyrirspurnum, ábendingum og öðrum erindum sem berast frá neytendum. Netföngin eru: petur@nordanfiskur.is og sala@nordanfiskur.is

Vörugæðin teljum við svo trygg sem framast má verða -á þeim forsendum sem áletrun á umbúðirnar segir til um. en jafnframt leggjast þau í dóm neytandans beint. Því er hér lögð áhersla á aðgang hans að forsvarsmönnum fyrirtækisins, svo sem að ofan greinir.