Gæðavörur úr íslensku hráefni

Brauðaðar vörur

Við framleiðum allar okkar brauðuðu vörur sjálf í vinnslunni okkar á Akranesi. Allur fiskur sem við brauðum fer frosinn í gegnum brauðunarlínuna og er hann því ekki foreldaður. Okkar viðskiptavinir elda vöruna í fyrsta skipti sem skilar sér í auknum gæðum til þeirra.

Kentucky þorskur

Mjög vinsæl vara hjá okkur og ekki að ástæðulausu. Þorskbitar sem eru brauðhjúpaðir með kentucky kryddhjúp, tilbúnir í ofninn, pönnuna eða djúpsteikingarpottinn.

Ýsa í orly

Ýsubitar í orly deigi hafa alltaf verið vinsælir hjá Norðanfiski. Einstaklega bragðgóðir bitar þar sem eingöngu eru notaðir glænýir ýsubitar.

Þorskur og ýsa í raspi

Stundum er bara klassíkin best. Við erum bæði að brauða ýsu- og þorskbita með hefðbundnum brauðraspi.

Fiskibollur - stórar og litlar

Við framleiðum mikið magn af fiskibollum, bæði stórar og litlar úr úrvals plokkfisksefni. Okkar bollur eru forsteiktar og eru því tilbúnar beint í ofninn og/eða pönnuna.

Vörurnar okkar

Við framleiðum ferskar og unnar fiskafurðir í stöðugum gæðum, með fjölbreyttum pakkningarmöguleikum og magnstærðum.

Elduð laxabringa á diski með grilluðu salati og grænu grænmeti.

Lax og Bleikja

Þorskflök, steiktar kartöflur og karamelluseraður laukur á bláum diski, skreytt með örgrænmeti.

Hvítfiskur

Diskur með steiktum mat: tveir gullinbrúnir bitar, kartöflukúlur og klípa af sósu.

Brauðaðar vörur