Gæðavörur úr úrvals hráefni

Humar

Við hjá Norðanfiski eigum alltaf nóg til af humri, bæði í skel og skelflettan. Erum með hefðbundinn leturhumar sem íslendingar kannast vel við en einnig erum við með kanadíska humarhala og grjóthumar (Rock lobster).


Við leggjum mikla áherslu á að vera bara með 100% gæði. Ekki hika við að hafa samband ef þú fá tilboð í okkar vöruliði.

Humar í skel

Við bjóðum upp á allar stærðir og gerðir af humar í skel. Við flytjum allan leturhumar okkar inn frá Danmörku. 

Skelflettur humar

Að auki eigum við til nóg af skelflettum humar en ásókn í hann hefur aukist mjög mikið síðustu ár. Hann hentar á pizzur, súpur, pasta og í allskyns rétti. Eigum hann einnig til í ýmsum stærðum.

Kanadískur humar

Kanadískur humar hefur alla tíð verið mjög vinsæll hjá Ameríkönum en Íslendingar hafa einnig lært að meta þessa tegund af humri. Hann er aðeins grófari en leturhumarinn en lítur einstaklega vel út á disk og er virkilega bragðgóður.

Humarsoð

Við framleiðum mikið magn af humarsoði á Akranesi. Við eigum til nokkrar útfærslur af soðinu okkar þannig að allir ættu að geta fundið tegund við sitt hæfi. Notum humarklær, humarhausa, skeljar og í einni tegund íslenskan grjótkrabba.

Vörurnar okkar

Við framleiðum ferskar og unnar fiskafurðir í stöðugum gæðum, með fjölbreyttum pakkningarmöguleikum og magnstærðum.

Pönnusteikt laxaflök á diski með grilluðu salati og grænu grænmeti.

Lax og Bleikja

Diskur með elduðum fiski, kartöflum og karamelluseruðum lauk, með örgrænmeti.

Hvítfiskur

Diskur með steiktum mat: tveir gullinbrúnir þríhyrningar, kartöflukúlur og klípa af sósu á flekkóttum diski.

Brauðaðar vörur