Uppskriftir
Vinsæla risasækju lokan
,,Hér er svo uppskriftin af risarækju lokunni sem þið VERÐIÐ AÐ PRÓFA! Hjálpi mér allir heilagir hvað þetta var gott 🤭🤤🤤 ( og miklu einfaldara en ég bjóst við!)“
Rakel María
Rækjurnar
- Argentínskar rækjur frá Norðanfiski
- Chili crisp
- Ólífuolía
- Salt og pipar
Brauðið
- Brioche Pretzel brauð
- Bráðið smjör til að pensla
Hvítlaukssósa
- 1 dl majónes (eða grísk jógúrt)
- 1–2 hvítlauksrif, pressuð
- Safi úr ½ sítrónu
- Salt og pipar eftir smekk
Einnig má nota tilbúna sósu, t.d. Hellmann's Roasted Garlic Mayo.
Döðlusalsa
- Döðlur, smátt saxaðar
- Smátt saxaður rauðlaukur
- Smá ólífuolía
- Salt
- Chili crisp eftir smekk
Álegg
- Steiktur laukur
- Graslaukur, smátt saxaður
- Rifinn Feykir ostur frá MS
- Fínt rifinn sítrónubörkur
Grillað brioche pretzel brauð með argentískum rækjum, döðlusalsa og sítrónuosti
Aðferð
- Marineraðu rækjurnar í chili crisp og smá ólífuolíu. Grillaðu þær á spjóti eða steiktu á pönnu þar til þær eru eldaðar í gegn.
- Penslaðu brioche pretzel brauðin með bráðnu smjöri og grillaðu eða steiktu létt á báðum hliðum þar til þau verða gullin og stökk að utan.
- Hrærið saman hráefnum í hvítlaukssósuna eða notið tilbúna hvítlauksmajónes-sósu.
- Blandið saman döðlum, rauðlauk, ólífuolíu, salti og chili crisp til að útbúa döðlusalsa.
- Blandið steiktum lauk og graslauk saman í skál.
- Blandið rifnum Feyki osti saman við rifinn sítrónubörk.
Samsetning
- Smyrjið brauðið vel með hvítlaukssósunni.
- Dreifið döðlusalsa yfir.
- Leggið rækjurnar ofan á.
- Stráið lauk- og graslauksblöndunni yfir.
- Ljúkið svo verkinu með ríkulegu lagi af sítrónuostinum.
- Berið fram strax á meðan brauðið er volgt og rækjurnar safaríkar. 🌶️🍋🦐




