Uppskriftir

Eldaðu eins og Sævar á Kol

,,Ég heiti Sævar Lárusson og er yfirkokkur og eigandi á Kol. Í gegnum árin hef ég unnið mikið með frábært hráefni frá Norðanfiski sem hentar einstaklega vel á mínum veitingastað þar sem við erum með mjög breitt úrval af sjávarréttum. 

 

Í góðri samvinnu við allt frábæra fólkið hjá Norðanfiski hef ég útbúið úrval gómsætra rétta sem vonandi rata inn á ykkar heimili. Þetta eru einfaldar en dálítið framandi uppskriftir sem þið verðið bara að prófa.


Njótið!''

 

SÆVAR CHEF

2. október 2026
Bragðgóður saltfiskur með mildri og kryddaðri spænskri tómatsósu úr tómötum, papriku, rauðlauk og hvítlauk. Borinn fram með soðnum kartöflum og fersku ólífusalati með tómötum, rauðlauk, steinselju og sítrónu.
29. september 2026
Klassískar og ljúffengar fiskibollur frá Norðanfiski, bornar fram með mjúkri kartöflustöppu, rjómalagaðri lauksósu og smjörsoðnu brokkolíi. Fiskibollurnar fara beint frosnar í ofn eða airfryer, svo það þarf ekki að þíða þær fyrir eldun.
29. september 2026
Ljúffengir bleikjubitar með sætum og ferskum hunangsgljáa úr hunangi, sítrónu, Dijon-sinnepi og hvítlauk, toppaðir með stökkum möndlum. Bornir fram með sætkartöflusalati með fetaosti og klettasalati ásamt ferskri sítrónu-jógúrtsósu með dilli.
29. september 2026
Sjúffengir laxabitar með bragðmiklum hvítlauks-teriyaki gljáa úr teriyaki, hunangi, sesamolíu, engifer, hvítlauk og lime.  Bornir fram með jasmin-hrísgrjónum og austurlensku grænmeti með brokkolíi, papriku og sykurbaunum, toppað með sesamfræjum.
29. september 2026
Stökk og ljúffeng rauðspretta í raspi, borin fram með fersku capersalati með sýrðum rauðlauk og kremkenndu remúlaði með súrum gúrkum, kapers, dilli og sítrónu. Einfaldur og bragðgóður fiskréttur sem hentar vel í léttan og fljótlegan heimilismat.
29. september 2026
Stökk og ljúffeng kornflex-ýsa með sætum kartöflufrönskum, fersku salati og bragðmikilli spicy mayo.  Einfaldur og fjölskylduvænn fiskréttur sem hentar vel í hversdagsmatinn.