Laxabitar
Ljúffengir laxabitar með bragðmiklum hvítlauks-teriyaki gljáa úr teriyaki, hunangi, sesamolíu, engifer, hvítlauk og lime.
Bornir fram með jasmin-hrísgrjónum og austurlensku grænmeti með brokkolíi, papriku og sykurbaunum, toppað með sesamfræjum.
Laxabitarnir eru afþíddir fyrir eldun.
Ofn: Hitið ofn í 180–200°C og eldið bleikjubitana í 10–15 mínútur.
Airfryer:
Eldið við 200°C í 7–9 mínútur.
Hvítlauks-teriyaki marinering/gljái - Hráefni
- 100 g teriyaki sósa
- 20 g hunang
- 15 g sesamolía
- 15 g ferskt engifer
- 15 g hvítlaukur
- 15 g lime-safi
Jasmine hrísgrjón - Hráefni
- 300 g jasmine hrísgrjón
Austurlenskt grænmeti - Hráefni
- 150 g brokkolí
- 150 g paprika
- 100 g sykurbaunir
- 15 g sesamolía
- 20 g sojasósa
- 10 g sesamfræ
Hvítlauks-teriyaki marinering/gljái - Aðferð
- Rífa engifer og hvítlauk fínt og blanda öllu saman.
- Blanda við laxabitana fyrir eldun eða pensla yfir við eldun.
Jasmine hrísgrjón - Aðferð
- Elda hrísgrjónin samkvæmt leiðbeiningum á umbúðum.
Austurlenskt grænmeti - Aðferð
- Skera grænmetið og steikja á vel heitri pönnu í 4-6 mínútur.
- Bæta sesamolíu og sojasósu við í lokin.
- Strá sesamfræjum yfir.
Aðferð
Austurlenskt grænmeti
- 150 g brokkolí
- 150 g paprika
- 100 g sykurbaunir
- 15 g sesamolía
- 20 g sojasósa
- 10 g sesamfræ
Skera grænmetið og steikja á vel heitri pönnu í 4-6 mínútur. Bæta sesamolíu og sojasósu við í lokin. Strá sesamfræjum yfir.















