Rauðspretta í raspi
Stökk og ljúffeng rauðspretta í raspi, borin fram með fersku capersalati með sýrðum rauðlauk og kremkenndu remúlaði með súrum gúrkum, kapers, dilli og sítrónu.
Einfaldur og bragðgóður fiskréttur sem hentar vel í léttan og fljótlegan heimilismat.
Ofn: Hitið ofn í 200–220°C.
Setjið rauðsprettuna frosna á bökunarplötu og bakið í 18–22 mínútur, eða þar til hún er fallega gyllt að utan.
Airfryer: Setjið rauðsprettuna frosna í airfryer og eldið við 200°C í um 15 mínútur.
Engin þörf er á að þíða rauðsprettuna fyrir eldun – beint úr frysti í ofn eða airfryer og svo á diskinn.
Caperssalat með sýrðum lauk - Hráefni
- 150 g blandað salat eða klettasalat
- 50 g rauðlaukur
- 30 g capers
- 30 g sítrónusafi
- 15 g hunang
- 25 g ólífuolía
- Salt og pipar eftir smekk
Remúlaði - Hráefni
- 150 g majónes
- 40 g súrar gúrkur smátt saxaðar
- 20 g capers, smátt saxað
- 20 g sætt sinnep
- 10 g sítrónusafi
- 5 g ferskt dilll, saxað
- 15 g hunang
Caperssalat með sýrðum lauk - Aðferð
- Sneiða rauðlaukinn þunnt og blanda honum saman við sítrónusafa og hunang.
- Láta standa í 15-20 mínútur.
- Blanda lauknum síðan saman við salat, capers og ólífuolíu.
- Smakka til með salti og pipar.
Remúlaði - Aðferð
- Saxa gúrkur, capers og dill.
- Blanda öllu vel saman og geyma kalt þar til borið er fram
Aðferð
Austurlenskt grænmeti
- 150 g brokkolí
- 150 g paprika
- 100 g sykurbaunir
- 15 g sesamolía
- 20 g sojasósa
- 10 g sesamfræ
Skera grænmetið og steikja á vel heitri pönnu í 4-6 mínútur. Bæta sesamolíu og sojasósu við í lokin. Strá sesamfræjum yfir.















