Bleikjubitar
Ljúffengir bleikjubitar með sætum og ferskum hunangsgljáa úr hunangi, sítrónu, Dijon-sinnepi og hvítlauk, toppaðir með stökkum möndlum.
Bornir fram með sætkartöflusalati með fetaosti og klettasalati ásamt ferskri sítrónu-jógúrtsósu með dilli.
Bleikjubitarnir eru afþíddir fyrir eldun.
Ofn: Hitið ofn í 180–200°C og eldið bleikjubitana í 10–15 mínútur.
Airfryer:
Eldið við 200°C í 7–9 mínútur.
Hunangsgljái - Hráefni
- 60 g hunang
- 20 g sítrónusafi
- 15 g Dijon sinnep
- 10 g ólífuolía
- 5 g hvítlaukur
- 3 g salt
- möndlur eftir smekk
Sætkartöflusalat - Hráefni
- 600 g sætar kartöflur
- 100 g fetaostur í olíu
- 80 g klettasalat
- 50 g rauðlaukur
- salt og pipar eftir smekk
- olía úr fetaostkrukkunni eftir smekk
Sítrónu-jógúrtsósa - Hráefni
- 200 g grísk jógúrt
- 25 g sítrónusafi
- 10 g hunang
- 5 g ferskt dill
- börkur af 1/2 sítrónu
- 3 g sítrónupipar
Hunangsgljái - Aðferð
- Blanda öllu saman og pensla yfir bleikjuna fyrir og/eða undir lok eldunar.
- Strá möndlum yfir bleikjuna.
Sætkartöflusalat - Aðferð
- Skera sætu kartöflurnar í bita, krydda með salti og pipar og baka við 200°C í um 25 mínútur.
- Kæla aðeins og blanda saman við fetaost, klettasalat og þunnt sneiddan rauðlauk.
- Bæta olíu úr fetaostkrukkunni út í eftir smekk.
Sítrónu-jógúrtsósa - Aðferð
- Blanda öllu saman og smakka til.
Aðferð
Sítrónu-jógúrtsósa
- 200 g grísk jógúrt
- 25 g sítrónusafi
- 10 g hunang
- 5 g ferskt dill
- börkur af 1/2 sítrónu
- 3 g sítrónupipar
Blanda öllu saman og smakka til.















