Kentucky ýsa

Stökk Kentucky ýsa með gullnum kartöflubátum, fersku hrásalati og smjörsoðnum maís er einfaldur og bragðmikill réttur sem öll fjölskyldan getur notið.


Fullkominn heimilismatur þegar þig langar í eitthvað fljótlegt, stökkt og sérlega gott.

Ofn: Hitið ofn í 200–220°C.

Setjið ýsuna frosna á bökunarplötu og bakið í 18–22 mínútur, eða þar til hún er fallega gyllt að utan.


Airfryer: Setjið ýsuna frosna í airfryer og eldið við 200°C í um 15 mínútur. 

Engin þörf er á að þíða ýsuna fyrir eldun – beint úr frysti í ofn eða airfryer og svo á diskinn.

Ofn: Hitið ofn í 200–220°C.

Setjið ýsuna frosna á bökunarplötu og bakið í 18–22 mínútur, eða þar til hún er fallega gyllt að utan.


Airfryer: Setjið ýsuna frosna í airfryer og eldið við 200°C í um 15 mínútur. 

Engin þörf er á að þíða ýsuna fyrir eldun – beint úr frysti í ofn eða airfryer og svo á diskinn.

Kentucky ýsa

Stökk Kentucky ýsa með gullnum kartöflubátum, fersku hrásalati og smjörsoðnum maís er einfaldur og bragðmikill réttur sem öll fjölskyldan getur notið. Fullkominn heimilismatur þegar þig langar í eitthvað fljótlegt, stökkt og sérlega gott.

Kartöflubátar - Hráefni

  • 800 g kartöflur
  • 30 g ólífuolía
  • 6 g salt
  • 3 g paprikuduft
  • 2 g hvítlauksduft

Hrásalat - Hráefni

  • 400 g hvítkál
  • 40 g sítrónusafi
  • 30 g eplaedik
  • 100 g majónes
  • 50 g hunang
  • 3 g salt

Maís - Hráefni

  • 4 maísstönglar
  • 30 g smjör
  • salt eftir smekk

Stökkir kartöflubátar - Aðferð

  1. Skera kartöflurnar í báta og blanda saman við olíu og krydd. 
  2. Baka við 210°C í 30-40 mínútur, þar til þær eru stökkar og fallega gylltar. 
  3. Gott er að hrista upp í þeim tvisvar á meðan eldun stendur.

Hrásalat - Aðferð

  1. Saxa hvítkálið mjög smátt og blanda saman við sítrónusafa og eplaedik. 
  2. Láta standa í um 30 mínútur. 
  3. Hella safanum af og blanda majónesi, hunangi og salti saman við.

Maís - Aðferð

  1. Sjóða maísinn í 5-7 mínútur eða grilla þar til hann er heitur og aðeins brúnaður.
  2. Bera fram með smjöri og salti.
2. október 2026
Bragðgóður saltfiskur með mildri og kryddaðri spænskri tómatsósu úr tómötum, papriku, rauðlauk og hvítlauk. Borinn fram með soðnum kartöflum og fersku ólífusalati með tómötum, rauðlauk, steinselju og sítrónu.
29. september 2026
Klassískar og ljúffengar fiskibollur frá Norðanfiski, bornar fram með mjúkri kartöflustöppu, rjómalagaðri lauksósu og smjörsoðnu brokkolíi. Fiskibollurnar fara beint frosnar í ofn eða airfryer, svo það þarf ekki að þíða þær fyrir eldun.
29. september 2026
Ljúffengir bleikjubitar með sætum og ferskum hunangsgljáa úr hunangi, sítrónu, Dijon-sinnepi og hvítlauk, toppaðir með stökkum möndlum. Bornir fram með sætkartöflusalati með fetaosti og klettasalati ásamt ferskri sítrónu-jógúrtsósu með dilli.
29. september 2026
Ljúffengir laxabitar með bragðmiklum hvítlauks-teriyaki gljáa úr teriyaki, hunangi, sesamolíu, engifer, hvítlauk og lime. Bornir fram með jasmin-hrísgrjónum og austurlensku grænmeti með brokkolíi, papriku og sykurbaunum, toppað með sesamfræjum.
29. september 2026
Stökk og ljúffeng rauðspretta í raspi, borin fram með fersku capersalati með sýrðum rauðlauk og kremkenndu remúlaði með súrum gúrkum, kapers, dilli og sítrónu. Einfaldur og bragðgóður fiskréttur sem hentar vel í léttan og fljótlegan heimilismat.
29. september 2026
Stökk og ljúffeng kornflex-ýsa með sætum kartöflufrönskum, fersku salati og bragðmikilli spicy mayo.  Einfaldur og fjölskylduvænn fiskréttur sem hentar vel í hversdagsmatinn.
Stökk rauðspretta á smjörsteiktu brioche brauði með remúlaði, rauðkáli og steiktum lauk .
5. febrúar 2026
Stökk rauðspretta á smjörsteiktu brioche brauði með remúlaði, rauðkáli og steiktum lauk – smörrebröd sem slær alltaf í gegn. Fljótlegt, þægilegt og fullkomið í léttan en bragðmikinn heimilismat.
Stökkur tempura humar í mjúkum tortillas með fersku salati, hnetum og spæsí mæjó.
5. febrúar 2026
Stökkur tempura humar í mjúkum tortillas með fersku salati, hnetum og spæsí mæjó – lúxus taco sem er ótrúlega einfalt að gera. Fullkomið fyrir Taco Tuesday eða þegar þú vilt gera eitthvað extra gott úr heimilismatnum.
Bragðmiklir þorskbitar steiktir með döðlum, hnetum og hvítlauk – bornir fram á nýbökuðu brauði.
5. febrúar 2026
Bragðmiklir þorskbitar steiktir með döðlum, hnetum og hvítlauk – bornir fram á nýbökuðu súrdeigsbrauði með lime aioli. Einstaklega góður réttur sem fyllir eldhúsið af dásamlegum ilm og gerir heimilismatinn extra skemmtilegan.
Stökkir Kentucky þorskbitar með smjörsteiktum íslenskum kartöflum og heimagerðri tartar sósu .
4. febrúar 2026
Stökkir Kentucky þorskbitar með smjörsteiktum íslenskum kartöflum og heimagerðri tartar sósu – klassísk samsetning sem klikkar aldrei. Virkilega einfalt, fljótlegt og ótrúlega gott í heimilismatinn.
Sjá meira