Kentucky þorskbitar

Hráefni

  • 1 pakki kentucky þorskbitar frá Norðanfiski
  • 1 poki íslenskar kartöflur
  • 200g mæjónes
  • 2-3 súrar gúrkur
  • 1 búnt steinselja
  • 2 sítrónur
  • 1 krukka capers

Kentucky þorskbitar

Kentucky þorskbitar, íslenskar kartöflur, tartar sósa, mæjónes, súrar gúrkur, steinselja, sítrónusafi, capers

Stökkir Kentucky þorskbitar með smjörsteiktum íslenskum kartöflum og heimagerðri tartar sósu – klassísk samsetning sem klikkar aldrei. Virkilega einfalt, fljótlegt og ótrúlega gott í heimilismatinn. 

Aðferð

  1. Kartöflurnar eru skornar í helminga og steiktar á pönnu með miklu smjöri.
  2. Bætið við sjávarsalti og sesamfræjum.
  3. Þorskbitarnir eru settir í airfryer í 10 mínútur á 200°.
  4. Tartar sósan er búin til með því að blanda saman mæjónesi, súrum gúrkum, saxaðri steinselju, sítrónusafa og söxuðum capers. Salt og pipar eftir smekk.
2. október 2026
Bragðgóður saltfiskur með mildri og kryddaðri spænskri tómatsósu úr tómötum, papriku, rauðlauk og hvítlauk. Borinn fram með soðnum kartöflum og fersku ólífusalati með tómötum, rauðlauk, steinselju og sítrónu.
29. september 2026
Klassískar og ljúffengar fiskibollur frá Norðanfiski, bornar fram með mjúkri kartöflustöppu, rjómalagaðri lauksósu og smjörsoðnu brokkolíi. Fiskibollurnar fara beint frosnar í ofn eða airfryer, svo það þarf ekki að þíða þær fyrir eldun.
29. september 2026
Ljúffengir bleikjubitar með sætum og ferskum hunangsgljáa úr hunangi, sítrónu, Dijon-sinnepi og hvítlauk, toppaðir með stökkum möndlum. Bornir fram með sætkartöflusalati með fetaosti og klettasalati ásamt ferskri sítrónu-jógúrtsósu með dilli.
29. september 2026
Sjúffengir laxabitar með bragðmiklum hvítlauks-teriyaki gljáa úr teriyaki, hunangi, sesamolíu, engifer, hvítlauk og lime.  Bornir fram með jasmin-hrísgrjónum og austurlensku grænmeti með brokkolíi, papriku og sykurbaunum, toppað með sesamfræjum.
29. september 2026
Stökk og ljúffeng rauðspretta í raspi, borin fram með fersku capersalati með sýrðum rauðlauk og kremkenndu remúlaði með súrum gúrkum, kapers, dilli og sítrónu. Einfaldur og bragðgóður fiskréttur sem hentar vel í léttan og fljótlegan heimilismat.
29. september 2026
Stökk og ljúffeng kornflex-ýsa með sætum kartöflufrönskum, fersku salati og bragðmikilli spicy mayo.  Einfaldur og fjölskylduvænn fiskréttur sem hentar vel í hversdagsmatinn.
29. september 2026
Stökk Kentucky-ýsa með gylltum kartöflubátum, fersku hrásalati og smjörsteiktum maís. Einföld og gómsæt máltíð sem öll fjölskyldan mun njóta!
Stökk rauðspretta á smjörsteiktu brioche brauði með remúlaði, rauðkáli og steiktum lauk .
5. febrúar 2026
Stökk rauðspretta á smjörsteiktu brioche brauði með remúlaði, rauðkáli og steiktum lauk – smörrebröd sem slær alltaf í gegn. Fljótlegt, þægilegt og fullkomið í léttan en bragðmikinn heimilismat.
Stökkur tempura humar í mjúkum tortillas með fersku salati, hnetum og spæsí mæjó.
5. febrúar 2026
Stökkur tempura humar í mjúkum tortillas með fersku salati, hnetum og spæsí mæjó – lúxus taco sem er ótrúlega einfalt að gera. Fullkomið fyrir Taco Tuesday eða þegar þú vilt gera eitthvað extra gott úr heimilismatnum.
Bragðmiklir þorskbitar steiktir með döðlum, hnetum og hvítlauk – bornir fram á nýbökuðu brauði.
5. febrúar 2026
Bragðmiklir þorskbitar steiktir með döðlum, hnetum og hvítlauk – bornir fram á nýbökuðu súrdeigsbrauði með lime aioli. Einstaklega góður réttur sem fyllir eldhúsið af dásamlegum ilm og gerir heimilismatinn extra skemmtilegan.
Sjá meira