Þorskbitar á súrdeigsbrauði
Hráefni
- 4-5 stk. þorskbitar frá Norðanfiski
- 100 g saxaðar döðlur
- 4x hvítlauksgeirar
- 100 g ristaðar kasjúhnetur
- 1 búnt steinselja
- 2 stk. laukur
- salt
- pipar
Lime aioli
- 2 stk lime
- 2x hvítlauksgeirar
- 100 ml mæjónes
Þorskbitar á súrdeigsbrauði
þORskbitar, döðlur, hvítlaukusgeirar, kasjúhnetur, steinselja, laukur, lime, mæjónes,salt og pipar
Bragðmiklir þorskbitar steiktir með döðlum, hnetum og hvítlauk – bornir fram á nýbökuðu súrdeigsbrauði með lime aioli. Einstaklega góður réttur sem fyllir eldhúsið af dásamlegum ilm og gerir heimilismatinn extra skemmtilegan.
Aðferð
- Skerið þorskbitana í litla bita og setjið í skál.
- Bætið við í skálina söxuðum döðlum, söxuðum hvítlauknum, ristuðu kasjúhnetunum, steinseljunni og lauknum.
- Hita pönnuna með miklu smjöri og bæta blöndunni ofan á, salt og pipar eftir smekk.
- Borið fram með nýbökuðu súrdeigsbrauði og þeyttu smjöri.
- Til að toppa réttinn er gott að bera fram lime aioli með. En það er einfaldlega að rífa niður 2 stk lime, 2x hvítlauksgeira og blanda við100ml mæjónes. Smakka til með salti.













