Heitreykt laxa bruschetta

Hráefni

  • 1 pakki heitreykur lax
  • 1 hleifur Brioche brauð
  • 1 krukka eldpiparsulta
  • 1 lime
  • 100 ml mæjónes
  • 2x hvítlauks geirar

Heitreykt laxa bruchetta

Steikt brioche brauð, rifinn heitreyktur lax, mæjónes, eldpiparsulta, lime, aioli

Þessar heitreyktu laxa bruschettur eru einfaldar, fljótlegar og ótrúlega góðar. Stökk brioche, fersk lime aioli og smá sætt og sterkt frá eldpiparsultu – fullkomið í forréttinn.

Aðferð

  1. Rífið lime og hvítlauk niður með rifjárni.
  2. Setjið í skál saman með mæjónesi og hrærið vel saman - þá er tilbúið Lime aioli.
  3. Skerið brauðið niður í fallegar sneiðar og steikið á pönnu þar til það verður gullinbrúnt.
  4. Rífið heitreykta laxinn niður og setjið ofan á steikta brauðið.
  5. Toppið með lime aioli og eldpiparsultu.
2. október 2026
Bragðgóður saltfiskur með mildri og kryddaðri spænskri tómatsósu úr tómötum, papriku, rauðlauk og hvítlauk. Borinn fram með soðnum kartöflum og fersku ólífusalati með tómötum, rauðlauk, steinselju og sítrónu.
29. september 2026
Klassískar og ljúffengar fiskibollur frá Norðanfiski, bornar fram með mjúkri kartöflustöppu, rjómalagaðri lauksósu og smjörsoðnu brokkolíi. Fiskibollurnar fara beint frosnar í ofn eða airfryer, svo það þarf ekki að þíða þær fyrir eldun.
29. september 2026
Ljúffengir bleikjubitar með sætum og ferskum hunangsgljáa úr hunangi, sítrónu, Dijon-sinnepi og hvítlauk, toppaðir með stökkum möndlum. Bornir fram með sætkartöflusalati með fetaosti og klettasalati ásamt ferskri sítrónu-jógúrtsósu með dilli.
29. september 2026
Sjúffengir laxabitar með bragðmiklum hvítlauks-teriyaki gljáa úr teriyaki, hunangi, sesamolíu, engifer, hvítlauk og lime.  Bornir fram með jasmin-hrísgrjónum og austurlensku grænmeti með brokkolíi, papriku og sykurbaunum, toppað með sesamfræjum.
29. september 2026
Stökk og ljúffeng rauðspretta í raspi, borin fram með fersku capersalati með sýrðum rauðlauk og kremkenndu remúlaði með súrum gúrkum, kapers, dilli og sítrónu. Einfaldur og bragðgóður fiskréttur sem hentar vel í léttan og fljótlegan heimilismat.
29. september 2026
Stökk og ljúffeng kornflex-ýsa með sætum kartöflufrönskum, fersku salati og bragðmikilli spicy mayo.  Einfaldur og fjölskylduvænn fiskréttur sem hentar vel í hversdagsmatinn.
29. september 2026
Stökk Kentucky-ýsa með gylltum kartöflubátum, fersku hrásalati og smjörsteiktum maís. Einföld og gómsæt máltíð sem öll fjölskyldan mun njóta!
Stökk rauðspretta á smjörsteiktu brioche brauði með remúlaði, rauðkáli og steiktum lauk .
5. febrúar 2026
Stökk rauðspretta á smjörsteiktu brioche brauði með remúlaði, rauðkáli og steiktum lauk – smörrebröd sem slær alltaf í gegn. Fljótlegt, þægilegt og fullkomið í léttan en bragðmikinn heimilismat.
Stökkur tempura humar í mjúkum tortillas með fersku salati, hnetum og spæsí mæjó.
5. febrúar 2026
Stökkur tempura humar í mjúkum tortillas með fersku salati, hnetum og spæsí mæjó – lúxus taco sem er ótrúlega einfalt að gera. Fullkomið fyrir Taco Tuesday eða þegar þú vilt gera eitthvað extra gott úr heimilismatnum.
Bragðmiklir þorskbitar steiktir með döðlum, hnetum og hvítlauk – bornir fram á nýbökuðu brauði.
5. febrúar 2026
Bragðmiklir þorskbitar steiktir með döðlum, hnetum og hvítlauk – bornir fram á nýbökuðu súrdeigsbrauði með lime aioli. Einstaklega góður réttur sem fyllir eldhúsið af dásamlegum ilm og gerir heimilismatinn extra skemmtilegan.
Sjá meira