Reykt laxa taco

Hráefni

  • 1 pakki reyktur lax
  • 1 pakki tortilla kökur
  • 1 pakki klettasalat
  • 1 stk papríka
  • 1 msk eldpiparmauk
  • 100 g mæjónes
  • 30 g pistasíur

Reykt laxa taco

Reyktur lax, tortilla kökur, klettasalat, papríka, eldpiparmauk, mæjónes, pistasíur.

Þessar laxatortillur eru fullkomin blanda af stökkri áferð, ferskleika og smá kryddi. Reyktur lax, spæsí mæjó, paprika og pistasíur koma saman í einföldum en ótrúlega bragðmiklum munnbitum sem henta jafnt í boð, brunch eða sem létt máltíð.

Aðferð

  1. Skerið reykta laxinn niður í þunnar sneiðar.
  2. Ristið tortilla kökur á pönnu í smá stund.
  3. Búið til "spæsí" mæjó með því að blanda saman eldpiparmauki við mæjónes og smakka til með sítrónusafa og salti.
  4. Ristið pistasíu hneturnar og brjótið þær niður.
  5. Skerið papríkuna niður í litlar fallegar sneiðar.
  6. Setjið laxinn fyrst á tortilla kökuna, "spæsí" mæjónesið yfir því næst papríkuna og enda með að strá pistasíum yfir.
2. október 2026
Bragðgóður saltfiskur með mildri og kryddaðri spænskri tómatsósu úr tómötum, papriku, rauðlauk og hvítlauk. Borinn fram með soðnum kartöflum og fersku ólífusalati með tómötum, rauðlauk, steinselju og sítrónu.
29. september 2026
Klassískar og ljúffengar fiskibollur frá Norðanfiski, bornar fram með mjúkri kartöflustöppu, rjómalagaðri lauksósu og smjörsoðnu brokkolíi. Fiskibollurnar fara beint frosnar í ofn eða airfryer, svo það þarf ekki að þíða þær fyrir eldun.
29. september 2026
Ljúffengir bleikjubitar með sætum og ferskum hunangsgljáa úr hunangi, sítrónu, Dijon-sinnepi og hvítlauk, toppaðir með stökkum möndlum. Bornir fram með sætkartöflusalati með fetaosti og klettasalati ásamt ferskri sítrónu-jógúrtsósu með dilli.
29. september 2026
Sjúffengir laxabitar með bragðmiklum hvítlauks-teriyaki gljáa úr teriyaki, hunangi, sesamolíu, engifer, hvítlauk og lime.  Bornir fram með jasmin-hrísgrjónum og austurlensku grænmeti með brokkolíi, papriku og sykurbaunum, toppað með sesamfræjum.
29. september 2026
Stökk og ljúffeng rauðspretta í raspi, borin fram með fersku capersalati með sýrðum rauðlauk og kremkenndu remúlaði með súrum gúrkum, kapers, dilli og sítrónu. Einfaldur og bragðgóður fiskréttur sem hentar vel í léttan og fljótlegan heimilismat.
29. september 2026
Stökk og ljúffeng kornflex-ýsa með sætum kartöflufrönskum, fersku salati og bragðmikilli spicy mayo.  Einfaldur og fjölskylduvænn fiskréttur sem hentar vel í hversdagsmatinn.
29. september 2026
Stökk Kentucky-ýsa með gylltum kartöflubátum, fersku hrásalati og smjörsteiktum maís. Einföld og gómsæt máltíð sem öll fjölskyldan mun njóta!
Stökk rauðspretta á smjörsteiktu brioche brauði með remúlaði, rauðkáli og steiktum lauk .
5. febrúar 2026
Stökk rauðspretta á smjörsteiktu brioche brauði með remúlaði, rauðkáli og steiktum lauk – smörrebröd sem slær alltaf í gegn. Fljótlegt, þægilegt og fullkomið í léttan en bragðmikinn heimilismat.
Stökkur tempura humar í mjúkum tortillas með fersku salati, hnetum og spæsí mæjó.
5. febrúar 2026
Stökkur tempura humar í mjúkum tortillas með fersku salati, hnetum og spæsí mæjó – lúxus taco sem er ótrúlega einfalt að gera. Fullkomið fyrir Taco Tuesday eða þegar þú vilt gera eitthvað extra gott úr heimilismatnum.
Bragðmiklir þorskbitar steiktir með döðlum, hnetum og hvítlauk – bornir fram á nýbökuðu brauði.
5. febrúar 2026
Bragðmiklir þorskbitar steiktir með döðlum, hnetum og hvítlauk – bornir fram á nýbökuðu súrdeigsbrauði með lime aioli. Einstaklega góður réttur sem fyllir eldhúsið af dásamlegum ilm og gerir heimilismatinn extra skemmtilegan.
Sjá meira