Kornflex tígrisrækju taco

Hráefni

  • 1 pakki Argentískar tempura risarækjur frá Norðanfiski
  • 1 pakki tortilla kökur
  • 1 stk. gul papríka
  • Ristaðar kasjúhnetur
  • Salatblanda
  • 300 g mæjónes
  • 3 msk. eldpiparmauk
  • Salt

Kornflex tígrisrækju taco

Argentískar tígrisrækjur, Tortilla, papríka, salat, kasjúhnetjur

Stökkt, ferskt og ótrúlega einfalt – þessir kornflex tígrisrækju tacos eru fullkomnir í fljótlegan og skemmtilegan kvöldmat sem öll fjölskyldan mun elska. Sérstaklega á ,,taco-tuesday'' eins og þeir segja!

Aðferð

  1. Kornflex rækjurnar eru settar í airfyer á 200° í 8 mínútur.
  2. Papríkan er skorin í þunnar sneiðar.
  3. Ristuðu kasjúhneturnar eru brotnar niður í smærri agnir og skellt.
  4. Skola salatblönduna.
  5. Sett saman í vefjur og borið fram með spicy mæjó


Spicy mæjó

  1. Blanda saman mæjónesi og eldpiparmaukinu í skál og smakkað til með salti.
2. október 2026
Bragðgóður saltfiskur með mildri og kryddaðri spænskri tómatsósu úr tómötum, papriku, rauðlauk og hvítlauk. Borinn fram með soðnum kartöflum og fersku ólífusalati með tómötum, rauðlauk, steinselju og sítrónu.
29. september 2026
Klassískar og ljúffengar fiskibollur frá Norðanfiski, bornar fram með mjúkri kartöflustöppu, rjómalagaðri lauksósu og smjörsoðnu brokkolíi. Fiskibollurnar fara beint frosnar í ofn eða airfryer, svo það þarf ekki að þíða þær fyrir eldun.
29. september 2026
Ljúffengir bleikjubitar með sætum og ferskum hunangsgljáa úr hunangi, sítrónu, Dijon-sinnepi og hvítlauk, toppaðir með stökkum möndlum. Bornir fram með sætkartöflusalati með fetaosti og klettasalati ásamt ferskri sítrónu-jógúrtsósu með dilli.
29. september 2026
Sjúffengir laxabitar með bragðmiklum hvítlauks-teriyaki gljáa úr teriyaki, hunangi, sesamolíu, engifer, hvítlauk og lime.  Bornir fram með jasmin-hrísgrjónum og austurlensku grænmeti með brokkolíi, papriku og sykurbaunum, toppað með sesamfræjum.
29. september 2026
Stökk og ljúffeng rauðspretta í raspi, borin fram með fersku capersalati með sýrðum rauðlauk og kremkenndu remúlaði með súrum gúrkum, kapers, dilli og sítrónu. Einfaldur og bragðgóður fiskréttur sem hentar vel í léttan og fljótlegan heimilismat.
29. september 2026
Stökk og ljúffeng kornflex-ýsa með sætum kartöflufrönskum, fersku salati og bragðmikilli spicy mayo.  Einfaldur og fjölskylduvænn fiskréttur sem hentar vel í hversdagsmatinn.
29. september 2026
Stökk Kentucky-ýsa með gylltum kartöflubátum, fersku hrásalati og smjörsteiktum maís. Einföld og gómsæt máltíð sem öll fjölskyldan mun njóta!
Stökk rauðspretta á smjörsteiktu brioche brauði með remúlaði, rauðkáli og steiktum lauk .
5. febrúar 2026
Stökk rauðspretta á smjörsteiktu brioche brauði með remúlaði, rauðkáli og steiktum lauk – smörrebröd sem slær alltaf í gegn. Fljótlegt, þægilegt og fullkomið í léttan en bragðmikinn heimilismat.
Stökkur tempura humar í mjúkum tortillas með fersku salati, hnetum og spæsí mæjó.
5. febrúar 2026
Stökkur tempura humar í mjúkum tortillas með fersku salati, hnetum og spæsí mæjó – lúxus taco sem er ótrúlega einfalt að gera. Fullkomið fyrir Taco Tuesday eða þegar þú vilt gera eitthvað extra gott úr heimilismatnum.
Bragðmiklir þorskbitar steiktir með döðlum, hnetum og hvítlauk – bornir fram á nýbökuðu brauði.
5. febrúar 2026
Bragðmiklir þorskbitar steiktir með döðlum, hnetum og hvítlauk – bornir fram á nýbökuðu súrdeigsbrauði með lime aioli. Einstaklega góður réttur sem fyllir eldhúsið af dásamlegum ilm og gerir heimilismatinn extra skemmtilegan.
Sjá meira